|
|

|
Dúnsængur til sölu
Í nokkur ár höfum við fjölskyldan verið að þróa æðardúnsbúskap okkar og erum stolt af því að kynna afurð sem við fullvinnum frá grunni.
Hágæða náttúruafurð
Sem bændur erum við meðvituð um samspil manns og náttúru og tekur öll fjölskyldan þátt í bústörfunum.
Æðarvarp okkar er staðsett í Landey, litlu eyjarskeri við bóndabýli okkar á Skaga í Austur Húnavatnssýslu.
Eftir vél- og handhreinsun dúnsins er hann settur í sængur saumaðar úr dúnheldu bómullarlérefti eða silki, eftir óskum.
Dúnsæng er einstök gjöf.
Hafið samband og við veitum þér nánari upplýsingar.
SÆNGURGJÖF- FERMINGARGJÖF-BRÚÐARGJÖF-JÓLAGJÖF-TÆKIFÆRISGJÖF
|
|
|
|