|
|

|
Hestar
Að Höfnum hefur lengi verið stundaður hrossabúskapur. Upphaflega komu hrossin frá Aðalbóli í Vestur-Húnavatnssýslu með Jóni Benediktssyni. Eftir að við keyptum jörðina þá höfum við reynt að nota betri hesta á stóðmerarnar. Þar hefur Adam frá Ásmundarstöðum komið talsvert við sögu. Má þar nefna Hauk Frey IS1998156930 sem er fæddur hér og var notaður sem ungfoli og eru til hross undan honum. Síðastliðið sumar var Kolbeinn IS2004157340 frá Hafsteinsstöðum hér í hryssum. Kolbeinn er moldóttur og undan Adam.
|
|
|
|
|