|
|

|
Sumarhús til leigu
Náttúrufegurð, kyrrð og sveitasæla.
Við bjóðum gistingu í 55 fermetra sumarhúsi + 15 fermetra svefnloft á jörðinni Höfnum allan ársing hring í lengri eða til skemmri dvalar.
Hafnir eru 32 km frá Skagaströnd.
Í húsinu eru tvö svefnherbergi, opið rými með eldhúskrók, stofu og borðstofu. Baðherbergi er með sturtu.
Í stærra herberginu er hjónarúm, en í hinu eru tvö eins manns rúm. 15 fermetra svefnloft er og þar eru rúm fyrir fjóra. Ferðarúm fyrir börn og Hókus Pókus stóll eru á staðnum.
Húsið er búið leirtaui fyrir 12 manns, öllum búsáhöldum og helstu tækjum.
Stór pallur er umhverfis húsið. Heitur pottur með nuddi er á verönd.
Hafið samband og við veitum þér nánari upplýsingar.
|
|
|
|
|